Alþjóðlegt samstarf

Umboðsmaður barna tekur þátt í fjölbreyttu alþjóðlegu samstarfi og er samstarf við umboðsmenn barna í nágrannalöndunum ríkur þáttur í starfi embættisins.

Efnisyfirlit

 

 


Umboðsmaður barna tekur í starfi sínu virkan þátt í fjölbreyttu alþjóðlegu samstarfi. Mikilvægur liður í því er að eiga þétt samstarf við umboðsmenn barna í Evrópu, sem og sérstakt samstarf við umboðsmenn barna á Norðurlöndum. Auk þess tekur embættið virkan þátt í umræðu um málefni barna á heimsvísu, m.a. með þátttöku í alþjóðlegum ráðstefnum og viðburðum, fræðsluferðum og móttöku erlendra gesta.

Samtök umboðsmanna barna í Evrópu

Samtök umboðsmanna barna í Evrópu (ENOC) eru mikilvægur vettvangur fyrir samstarf um réttindi barna. Samtökin stuðla að vernd og framgangi réttinda barna samkvæmt Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna og skapa umboðsmönnum barna vettvang til að miðla þekkingu og reynslu og vinna sameiginlega að málefnum sem varða réttindi barna.

Vorráðstefna ENOC fór fram í Lúxemborg dagana 26.–27. maí og sótti Salvör Nordal, umboðsmaður barna, ráðstefnuna fyrir hönd embættisins. Fyrri dag ráðstefnunnar var sjónum beint að árlegu áherslumáli ENOC, rétti barna til líkamlegrar heilsu. Þar voru m.a. kynntar fyrstu niðurstöður kortlagningar ENOC á stöðu mála í aðildarlöndunum og fulltrúar embætta umboðsmanna barna miðluðu reynslu og þekkingu um ólíka þætti sem varða rétt barna til heilsu. Síðari dagurinn var helgaður stöðu barna í leit að alþjóðlegri vernd, með sérstakri áherslu á talsmenn barna og gæði umönnunar í tengslum við sáttmála Evrópusambandsins um fólksflutninga og hæli.

 

Árleg ráðstefna og ársfundur ENOC fóru fram í Búkarest í Rúmeníu dagana 17.–19. september 2025. Ráðstefnan markaði lok þeirrar vinnu sem fram hafði farið á árinu undir yfirskriftinni Protecting and Promoting Children's Right to Physical Health. Á ráðstefnunni var fjallað um rétt barna til líkamlegrar heilsu frá ýmsum sjónarhornum og m.a. kynntar niðurstöður rannsóknar ENOC á stöðu og framkvæmd réttarins í Evrópu. Þá kynntu fulltrúar ENYA sameiginlegar tillögur barna um hvernig betur mætti standa vörð um rétt þeirra til líkamlegrar heilsu. Á ársfundi ENOC, sem haldinn var 19. september, var jafnframt samþykkt sameiginleg yfirlýsing samtakanna um vernd og eflingu réttar barna til líkamlegrar heilsu. Yfirlýsingin byggir bæði á niðurstöðum rannsóknar ENOC og tillögum barna sem tóku þátt í ENYA.

Rumenia

Samstarfsvettvangur barna í Evrópu

Mikilvægur þáttur í starfi ENOC er þátttaka barna og að sjónarmið þeirra og reynsla fái að njóta sín í starfi samtakanna. Á vegum ENOC starfar ENYA (European Network of Young Advisors), sem er samstarfsvettvangur barna á vegum embætta umboðsmanna barna í Evrópu. Á hverju ári vinna börn að því viðfangsefni sem ENOC hefur valið sem sérstakt áherslumál ársins. Markmiðið er að gefa þeim tækifæri til að ræða viðfangsefnið út frá eigin reynslu og koma á framfæri sjónarmiðum sínum og tillögum.

Vinnan hefst í hverju þátttökulandi þar sem börn ræða viðfangsefni ársins og móta tillögur. Fulltrúar hópanna koma síðan saman á vinnufundi ENYA þar sem þeir kynna tillögur sínar, skiptast á skoðunum og reynslu og vinna að sameiginlegum áherslum. Afrakstur þeirrar vinnu er síðan kynntur fyrir umboðsmönnum barna á árlegri ráðstefnu ENOC. Þátttaka í ENYA er mismunandi milli ára en árið 2025 tóku 14 embætti þátt í verkefninu.

Árið 2025 var viðfangsefni ENYA réttur barna til líkamlegrar heilsu. Ráðgjafarhópur umboðsmanns barna tók þátt í verkefninu og fjallaði um viðfangsefnið á fundi á skrifstofu embættisins í byrjun maí. Á fundinum ræddu börnin ýmsar hliðar líkamlegrar heilsu og mótuðu í kjölfarið fimm tillögur sem endurspegluðu helstu áherslur þeirra.

Vinnufundur ENYA fór fram í Króatíu dagana 1.–2. júlí. Magnþóra Rós og Sigtryggur Máni, úr ráðgjafarhópi umboðsmanns barna, tóku þátt í fundinum og kynntu þar tillögur ráðgjafarhópsins. Á fundinum unnu börnin úr tillögum þátttökulandanna og mótuðu sameiginlegar tillögur ENYA um rétt barna til líkamlegrar heilsu.

Tillögur ENYA voru í kjölfarið kynntar fyrir umboðsmönnum barna á árlegri ráðstefnu ENOC sem fór fram í Búkarest í Rúmeníu dagana 17.–18. september. Þær voru jafnframt hafðar til hliðsjónar við mótun sameiginlegrar yfirlýsingar ENOC um rétt barna til líkamlegrar heilsu (ENOC Policy Position Statement on Children's Right to Physical Health). Sigtryggur Máni sótti ráðstefnuna fyrir hönd ráðgjafarhóps umboðsmanns barna og tók þátt í kynningu ENYA á tillögunum.

 

Kroatia  

 

Kroatia2

 

Kroatia-3

Árlegur fundur norrænna umboðsmanna barna

Árlegur fundur umboðsmanna barna á Norðurlöndunum var haldinn í Kaupmannahöfn í apríl. Markmið fundarins var að miðla þekkingu og upplýsingum um nýjungar og verkefni sem miða að aukinni vernd, þátttöku og jafnræði barna. Þá var farið í heimsókn í Joannahuset sem er athvarf þar sem börn sem búa við ofbeldi geta gist og fengið ráðgjöf. Einnig fengu umboðsmenn barna á Norðurlöndunum kynningu frá Fjölskylduréttarhúsinu í Danmörku.

Norræna Velferðarmiðstöðin

Sigurveig Þórhallsdóttir, lögfræðingur hjá embættinu, átti sæti í sérfræðihópi á vegum Norrænu velferðarmiðstöðvarinnar (NVC) sem fjallaði um rétt barna til þátttöku á tímum heimsfaraldurs. Um var að ræða norrænt samstarfsverkefni sem hafði það að markmiði að miðla þekkingu og rannsóknum um áhrif heimsfaraldursins og sóttvarnaráðstafana á börn á Norðurlöndunum, með sérstakri áherslu á rétt þeirra til þátttöku og aðkomu að ákvörðunum sem vörðuðu þau.

Verkefnið var unnið fyrir hönd Norrænu barna- og æskulýðsnefndarinnar (NORDBUK) og Norrænu ráðherranefndarinnar um heilbrigðis- og félagsmál. Vinnu sérfræðihópsins lauk í júní 2025.

Þátttaka barna á krísutímum

Á árinu tók umboðsmaður barna þátt í vinnu við skýrsluna Participation is Protection – Embedding Children's Rights in Nordic Crisis Governance, sem unnin var á vegum Norrænu velferðarmiðstöðvarinnar í samstarfi við umboðsmenn barna á Norðurlöndum og Kirsten Sandberg, prófessor emerita og fyrrverandi formann Barnaréttarnefndar Sameinuðu þjóðanna. Skýrslan var hluti norræns samstarfsverkefnis um þátttöku barna í kjölfar heimsfaraldurs og fjallar um hvernig Norðurlöndin geti betur tryggt rétt barna til þátttöku, ekki síst þegar samfélög standa frammi fyrir neyðarástandi og stjórnvöld þurfa að taka ákvarðanir með skömmum fyrirvara.

Sigurveig Þórhallsdóttir tók þátt í vinnunni fyrir hönd umboðsmanns barna á Íslandi og vann m.a. að umfjöllun um stöðu mála hér á landi. Í apríl komu Merethe Løberg, verkefnisstjóri hjá Norrænu velferðarmiðstöðinni, og Kirsten Sandberg til Íslands og áttu vinnufund með Sigurveigu þar sem unnið var að efni skýrslunnar og sameiginlegum niðurstöðum og tillögum.

Í skýrslunni er dreginn saman lærdómur af reynslu Norðurlandanna og bent á að heimsfaraldurinn hafi leitt í ljós verulega veikleika á því hvernig réttur barna til þátttöku er tryggður á neyðartímum. Lögð er áhersla á að þátttaka barna þurfi að vera innbyggð í viðbúnað og ákvarðanatöku stjórnvalda frá upphafi, þannig að sjónarmið þeirra geti haft raunveruleg áhrif á ákvarðanir sem varða þau. Skýrslan hefur að geyma tillögur um hvernig efla megi norrænt samstarf og tryggja með markvissari hætti réttindi og þátttöku barna á krísutímum.

Ráðstefna í Helsinki

Í byrjun júní sóttu fulltrúar umboðsmanns barna ráðstefnu Norrænu velferðarmiðstöðvarinnar í Helsinki sem bar yfirskriftina The Right of Children and Young People to Be Heard, Seen, and Involved in the Nordic Region. Ráðstefnan markaði lok fjögurra ára norræns samstarfsverkefnis um þátttöku barna á tímum heimsfaraldurs. Tveir fulltrúar ráðgjafarhóps umboðsmanns barna, Agla Björk og Baldvin Týr, sóttu ráðstefnuna ásamt starfsfólki embættisins og Ívari Mána.

Á ráðstefnunni var fjallað um reynslu og lærdóm af þátttöku barna á tímum heimsfaraldurs og hvernig tryggja megi að sjónarmið þeirra fái vægi þegar samfélög standa frammi fyrir krísum og öðrum óvenjulegum aðstæðum. Salvör Nordal, umboðsmaður barna, tók þátt í pallborðsumræðum ásamt öðrum umboðsmönnum barna á Norðurlöndum þar sem rætt var um þátttöku barna á krísutímum. Þar sagði hún m.a. frá samráðsfundi sem umboðsmaður barna hélt með börnum frá Grindavík í byrjun árs 2024 í kjölfar rýmingar bæjarins.494688233_1021377623439901_600261203585420127_n

495263341_562361626924339_1044774226226378856_n

Annað erlent samstarf

Fræðsluferð til Frakklands og ráðstefna á vegum Evrópuráðsins.

Starfsfólk umboðsmanns barna fór í fræðsluferð til Frakklands í lok mars. Fyrst var haldið til Parísar þar sem starfsfólk heimsótti embætti umboðsmanns barna í Frakklandi og átti fund með Eric Delemar, umboðsmanni barna. Á fundinum kynnti hann starfsemi embættisins og rætt var um verkefni og áherslur embættanna tveggja.

Frá París var haldið til Strassborgar þar sem starfsfólk sótti ráðstefnu Evrópuráðsins, Building a Europe for and with Children: Mid-Term Review Conference of the Strategy for the Rights of the Child (2022–2027). Ráðstefnan fór fram dagana 3.–4. apríl og var markmið hennar að leggja mat á framkvæmd stefnu Evrópuráðsins um réttindi barna, draga fram þann árangur sem náðst hefur og ræða helstu áskoranir og næstu skref.

Á ráðstefnunni var fjallað um fjölbreytt málefni sem tengjast megináherslum stefnunnar, m.a. barnvæna réttarvörslu, réttindi barna í stafrænu umhverfi, vernd barna gegn ofbeldi, þátttöku barna í ákvörðunum um eigin heilsu og réttindi barna á tímum neyðar og áfalla. Sérstök áhersla var lögð á þátttöku barna og tóku börn virkan þátt í umræðum og vinnustofum ráðstefnunnar.

Að ráðstefnunni lokinni heimsótti starfsfólk Mannréttindadómstól Evrópu og kynnti sér starfsemi dómstólsins.

Mynd6rad

 

Ráðstefnan World Congress on Justice with Children

Dagana 2.–4. júní fór alþjóðlega ráðstefnan World Congress on Justice with Children fram í Madríd. Hafdís Una Guðnýjardóttir, lögfræðingur hjá umboðsmanni barna, sótti ráðstefnuna fyrir hönd embættisins. Yfirskrift ráðstefnunnar var Advancing Child-Centred Justice: Preventing and Responding to Violence Affecting Children in Child Justice Systems og var sjónum sérstaklega beint að því hvernig efla megi barnvæna réttarvörslu og fyrirbyggja ofbeldi gegn börnum innan réttarkerfisins.

Á ráðstefnunni var fjallað um fjölbreytt málefni sem varða aðgang barna að réttarkerfinu og réttindi þeirra innan þess, m.a. vernd barna gegn ofbeldi, réttindi barna á tímum átaka og krísu, áhrif stafrænnar tækni og gervigreindar á réttindi barna og rétt barna til raunhæfs aðgangs að réttlátri málsmeðferð og virkum réttarúrræðum.

Umboðsmaður barna á Íslandi stóð fyrir vinnustofu á ráðstefnunni þar sem fjallað var um reynslu og upplifun barna af réttarkerfinu. Markmið vinnustofunnar var að skapa vettvang fyrir umboðsmenn barna og aðra þátttakendur til að ræða reynslu barna af samskiptum við réttarkerfið, aðgengi þeirra að því og þær úrbætur sem þörf er á til að tryggja betur réttindi barna innan réttarkerfisins.

8948759a-9765-426e-a8df-fe809310c5c1

 

 


Sjá fleiri ársskýrslur
Þetta vefsvæði byggir á Eplica