Embættið
Samkvæmt 1. gr. laga um umboðsmann barna nr. 83/1994 hefur embættið það meginhlutverk að bæta hag barna og standa vörð um hagsmuni, þarfir og réttindi þeirra í samræmi við ákvæði Barnasáttmálans.
Efnisyfirlit
- Mannauður
- 30 ára afmælishátíð umboðsmanns barna
- Fjárveitingar
- Embættið í fjölmiðlum
- Fjölmiðlavaktin
- Þróun tenginga við Facebook
- Vefsíðan
- Erindi frá börnum
- Skrifstofan
- Útgefið efni
- Umsagnir
- Greinar í fjölmiðlum
- Fréttabréf
Hlutverk embættisins er skilgreint í lögum um umboðsmann barna nr. 83/1994. Þar kemur fram að embættinu er ætlað að vinna að bættum hag barna og standa vörð um hagsmuni þeirra, þarfir og réttindi í samræmi við ákvæði Barnasáttmálans. Umboðsmaður skal eiga frumkvæði að stefnumarkandi umræðu í samfélaginu um málefni barna, fylgjast með þróun og túlkun Barnasáttmálans og stuðla að því að hann sé virtur, sem og aðrir alþjóðasamningar sem varða réttindi og velferð barna. Umboðsmaður barna skal jafnframt vinna að því að fullt tillit sé tekið til réttinda barna á öllum sviðum samfélagsins, hjá opinberum aðilum sem og einkaaðilum, og bregðast við ef brotið er gegn réttindum þeirra. Þá er umboðsmanni ætlað að koma með ábendingar og tillögur um það sem betur má fara í lögum og stjórnvaldsfyrirmælum sem varða málefni barna, kynna fyrir almenningi löggjöf sem varðar börn og beita sér fyrir því að gerðar verði rannsóknir á þessu sviði.
Mannauður
Salvör Nordal er umboðsmaður barna, og hefur hún gengt embætti frá 1. júlí 2017. Annað starfsfólk embættisins á árinu 2025 voru Guðlaug Edda Hannesdóttir, sérfræðingur, Hafdís Una Guðnýjardóttir, lögfræðingur, og Sigurveig Þórhallsdóttir, lögfræðingur.
Breytingar voru á starfsliði embættisins á árinu, Eðvald Einar Stefánsson, sérfræðingur hætti störfum í byrjun árs en hann hóf störf við embættið í desember árið 2007.

Verkefni innan embættisins
Hafdís Una Guðnýjardóttir var persónuverndarfulltrúi embættisins
Sigurveig Þórhallsdóttir var jafnréttistengiliður embættisins
Jafnréttisstefna umboðsmanns barna
30 ára afmælishátíð umboðsmanns barna

Þann 1. janúar 2025 voru 30 ár liðin frá því að embætti umboðsmanns barna var stofnað með lögum nr. 83/1994. Af því tilefni efndi umboðsmaður barna til 30 ára afmælishátíðar í Kaldalóni í Hörpu fimmtudaginn 9. janúar.
Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra flutti ávarp í tilefni afmælisins og Salvör Nordal, umboðsmaður barna, ávarpaði einnig gesti og fjallaði um þau tímamót sem afmælið markaði, þróun embættisins og starfsemi þess.
Í tilefni tímamótanna veitti Salvör fyrrverandi umboðsmönnum barna, þeim Þórhildi Líndal og Margréti Maríu Sigurðardóttur, þakkarvott frá embættinu fyrir þeirra störf og framlag í þágu réttinda barna. Þær fluttu jafnframt stutt ávörp þar sem þær litu yfir farinn veg og rifjuðu upp tíma sinn í embætti.
Að ávörpum loknum tóku við erindi um nokkur þeirra verkefna sem voru í brennidepli hjá embættinu. Sigurveig Þórhallsdóttir, lögfræðingur hjá umboðsmanni barna, fjallaði um mat á áhrifum á börn. Embættið hefur unnið leiðbeiningar um slíkt mat sem ætlað er að stuðla að því að réttindi og hagsmunir barna séu metin með markvissum hætti þegar teknar eru ákvarðanir eða ráðist í aðgerðir sem varða börn.
Hafdís Guðnýjardóttir, lögfræðingur hjá embættinu, flutti erindi um barnvæna réttarvörslu og kynnti úttekt embættisins á stöðu barnvænnar réttarvörslu á Íslandi.
Raddir barna og ungmenna áttu einnig sinn stað í dagskránni. Fulltrúar úr ráðgjafarhópi umboðsmanns barna fluttu erindi um fræðslu í skólum um réttindi jaðarsettra hópa. Þá kynntu fulltrúar úr barna- og ungmennaráði heimsmarkmiða Sameinuðu þjóðanna starf ráðsins.
Að formlegri dagskrá lokinni var gestum boðið upp á léttar veitingar og gafst þeim þá tækifæri til að ræða saman og fagna þessum tímamótum.
Hátíðin tókst einstaklega vel og var vel sótt.
Fjárveitingar
| Ár | Framlag úr ríkissjóði skv. fjárlögum |
|---|---|
| 2025 | 89,3 m. kr. |
| 2024 | 85,2 m.kr |
| 2023 | 97,8 m.kr |
| 2022 | 97,5 m.kr |
| 2021 | 78,5 m.kr |
Tafla 1. Fjárveitingar til umboðsmanns barna
Embættið í fjölmiðlum
Vefsíða embættisins gegnir ríku hlutverki í að koma ábendingum og fyrirspurnum barna á framfæri sem og fréttum af starfi embættisins og stöðu barna í íslensku samfélagi. Embættið er einnig virkt á samfélagsmiðlunum Facebook og Instagram.
Fjölmiðlavaktin
Undanfarin ár hefur umboðsmaður barna nýtt þjónustu Fjölmiðlavaktarinnar til að vakta umfjöllun um embættið í útvarpi, sjónvarpi, blöðum og á netmiðlum. Eftirfarandi upplýsingar eru fengnar úr þeirri skýrslu.

Tafla 2. Þróun fjölda frétta árið 2025 samanborið við árið 2024.

Tafla 3. Þróun fjölda frétta árið 2025 í samanburði við árið 2024 eftir miðlum
Þróun tenginga við Facebook
Línuritið hér að neðan sýnir heildarfjölda Facebook-tenginga sem vísuðu í nafnið „Umboðsmaður barna“ á árinu 2025.

Tafla 4. Þróun tenginga við Facebook árið 2025.
Vefsíðan
Á vefsíðu umboðsmanns barna geta börn og ungmenni sent fyrirspurnir með einföldum hætti og jafnframt nálgast svör við algengum spurningum. Vefsíðunni er ætlað að bæta aðgengi barna og ungmenna að umboðsmanni barna og einfalda þeim að sækja nauðsynlegar upplýsingar um sín réttindi.

Erindi frá börnum
Flest erindi frá börnum koma í gegnum spurt og svarað á vefsíðunni. Embættið leggur mikla áherslu á að vera í góðum samskiptum við börn og njóta fyrirspurnir frá börnum ávallt forgangs. Börnum er svarað eins fljótt og unnt er og þeim heitið fullum trúnaði. Starfsfólk embættisins er þó bundið tilkynningarskyldu skv. barnaverndarlögum, nr. 80/2002.
Þegar fyrirspurnir koma í gegnum vefsíðuna getur viðkomandi valið að fá svar í tölvupósti eða að það sé birt á vefsíðunni. Ekki er gerð krafa um að börn gefi upp nafn eða aðrar persónuupplýsingar.
Dæmi um spurningar og svör frá börnum og ungmennum
- Af hverju má ekki vera með tyggjó í skólanum?
- Mega krakkar yngri en 16 vinna meira en 12 tíma á viku og 2 tíma á skóladegi ef þau vilja það?
- Hef ég ekki rétt á að vera með vinkonum mínum í bekk?
- Mega kennarar fara í gegnum úlpuna þína án leyfis því þau halda að ég sé með nikótín vörur á mér?
- Mér líður illa að vera hjá pabba. Ég á erfitt með að sofa og er mjög kvíðinn.
- Ég er 14 ára. Mamma notar family link og lokar símanum mínum á kvöldin rosa snemma klukkan sjö. Má hún það bara?
- Síðan hvenær er skylda að (mæta í) sundtíma? Hvaða ríkisstjórn/stjórnmálamaður kom sundkennslu inn í skólanámið? Hvar get ég séð reglur, lög um sundnám?
Skrifstofan
Skrifstofa embættis umboðsmanns barna var á annarri hæð á Hverfisgötu 4. Samningur var gerður til þriggja ára í húsnæðinu frá september 2024. Starfsmenn deila sameiginlegu rými í húsnæðinu með starfsfólki Ríkislögmanns.
Starfshópar og samstarf
Embættið fær reglulega beiðnir um tilnefningar í starfshópa á vegum hins opinbera. Starfsfólk embættisins sátu í eftirfarandi starfshópum á árinu:
Velferðarvaktin
Guðlaug Edda Hannesdóttir var fulltrúi embættisins í Velferðarvaktinni
Samstarf við félagasamtök
- Guðlaug Edda Hannesdóttir var fulltrúi embættisins í Náum áttum hópnum.
- Sigurveig Þórhallsdóttir var fulltrúi embættisins í vinnuhópi vegna fræðsluefnis um Barnasáttmálann.
Útgefið efni
Embættið gefur reglulega út skýrslur og annað efni sem tengist Barnasáttmálanum og stöðu barna í íslensku samfélagi. Þá gefur embættið út rafræn fréttabréf og umboðsmaður barna skrifar reglulega greinar í blöð um þau málefni barna sem eru efst á baugi hverju sinni.
Eftirfarandi skýrslur voru gefnar út árið 2025:
Niðurstöður samráðsfundar barna og StrætóSkýrsla um barnvæna réttarvörsluÁrsskýrsla 2024Skýrsla umboðsmanns barna lögð fyrir barnaþing
Umsagnir
Á vefsíðu umboðsmanns barna birtast umsagnir og álit sem embættið sendir frá sér til Alþingis og annarra opinberra aðila. Hér má finna þær umsagnir sem embættið sendi frá sér á árinu en þær eru einnig aðgengilegar á vefsíðu Alþingis og á samráðsgátt stjórnvalda.
Greinar í fjölmiðlum
Hér má sjá yfirlit yfir greinar frá umboðsmanni barna, Salvöru Nordal sem birtust í fjölmiðlum á árinu:
Umboðsmaður barna í 30 ár Er íslenskt samfélag barnvænt? Barnaþing hefst á mannréttindadegi barna
Fréttabréf
Umboðsmaður gefur reglulega út rafræn fréttabréf um starfið. Á árinu voru 4 fréttabréf gefin út en hægt er að skrá sig á póstlistann okkar til að fá fréttabréfið sent þegar það kemur út.
Hér má sjá yfirlit yfir fréttabréf sem gefin voru út árið 2025:









